- Upplýsingar
- Læknisþjónusta
- Opin móttaka
- Heilsuverndin
- Sálfræðiþjónusta
- Um stöðina
Heilsugæslan Hlíðum er nú í Skógarhlíð 18.
Almennar upplýsingar
Heilsugæslan er opin 8:00 - 17:00
Svarað er í sima 8:00 til 16:00
Bráð erindi
1700 síminn og netspjall Heilsuveru veita ráðgjöf og geta komið erindum í farveg milli kl. 8 og 17. 1700 síminn er opinn allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru er opið frá kl. 8 til 22.
Sími 513-5900
Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík
hlidar@heilsugaeslan.is
Má bjóða þér að skrá þig rafrænt á Heilsugæsluna Hlíðum?
Hvað viltu gera?
Skrá á heilsugæslustöð?
Þú getur séð hvaða stöð er þín áMínum síðum Heilsuveruog íRéttindagátt sjúkratrygginga.
Þú getur skráð þig á heilsugæslustöð að eigin vali í Réttindagátt eða á stöðinni sjálfri.
Öllum er velkomið á skrá sig á stöðina og við tökum vel á móti þér.
Endurnýja lyf
Lyfjasíminn er 513-5902 á milli kl. 9:00 og 12:00 alla virka daga.
Líka er hægt að óska eftir endurnýjun á mínum síðumHeilsuveru.
- Nánari upplýsingar um lyfjaávísanir
Fá tíma hjá lækni?
Þú getur bókað tíma í heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Ef þú getur ekki beðið eru samdægurstímar, skyndimóttaka eða síðdegisvakt möguleiki.
Fá ráðleggingar?
Það er alltaf hægt að fá símasambandvið hjúkrunarfræðing sem kemur erindi þínu í farveg eða leiðbeinir þér með önnur úrræði
Koma á rannsóknarstofuna?
Rannsóknastofan er opin frá kl. 10:00 til 11.30 alla virka daga.
Bóka þarf tíma í blóðtöku og alltaf þarf beiðni frá lækni að liggja fyrir.
Þvagsýni þurfa að berast fyrir kl. 14:00. Best er að koma með fyrsta morgunþvag (miðbunuþvag) nema annað hafi verið tekið fram.
Tímapantanir og nánari upplýsingar í síma 513-5900
Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Heilsugæslunnar Hlíðum með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki.Hlekkur í örugg gagnaskil
Heilsugæslan Hlíðum þjónar fyrst og fremst íbúum Hlíðasvæðis, sem takmarkast af Snorrabraut og Kringlumýrarbraut og sjóa á milli, en allir eru velkomnir á stöðina. Skráning er í gegnum Réttindagátt sjúkratrygginga.
Nánari upplýsingar um stöðina og þjónustu hennar eru í flipunum hér fyrir ofan: Læknisþjónusta, Opin móttaka, Heilsuverndin, Sálfræðiþjónusta og Um stöðina.
Með rafrænum skilríkjum er hægt að bóka tíma, endurnýja lyf og senda einfaldar fyrirspurnir á mínum síðum á Heilsuvera.is
Við tökum vel á móti þér
Það eru nokkrar leiðir að þjónustu læknanna okkar.
Hvaða leið hentar þér best?
Bókuð móttaka lækna
Heimilislæknar á stöðinni eru með bókaða viðtalstíma frá kl. 8 - 16 og er hver tími 20 mínútur.
Þú bókar tíma í gegnum mínar síður á Heilsuveru eða með því að hringja á stöðina.
Samdægurstímar
Á hverjum degi eru fráteknir nokkrir tímar sem eru ætlaðir fyrir skyndileg veikindi. Hjúkrunarfræðingar bóka í þessa tíma eftir að hafa metið erindi þitt.
Síðdegisvakt
Milli kl. 16:00 og 17:00, mánudaga til fimmtudaga, eru læknar stöðvarinnar með síðdegisvakt.
Símaþjónusta lækna
Í símaviðtali svara læknar stuttorðum fyrirspurnum, veita einfaldar ráðleggingarog/eða gefa upplýsingar um niðurstöður rannsókna.
Oft er þægilegra að senda stuttar fyrirspurnir í gegnum í mínar síður íHeilsuveru. Milli kl. 8 og 16 er líka alltaf hægt að fá símasamband við hjúkrunarfræðing í síma 513-5900.
Panta má símaviðtalstíma fyrir hádegi í síma 513-5900 hjá læknunum, sem hringja til baka.
Lyfjaendurnýjanir
Hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun rafrænteða í síma. Þar er hægt að endurnýja lyf sem tekin eru að staðaldri og ávísað hefur verið af læknum stöðvarinnar.
Venjulega eru þessar lyfjaendurnýjanir tilbúnar til afgreiðslu í lyfjaverslunumeftir kl. 16:00 sama dag.
Rafræn lyfjaendurnýjun
Einfaldast er að óska eftir lyfjaendurnýjun á Heilsuvera.is. Þú þarft að hafarafræn skilríki.
Lyfjaendurnýjun í síma
Ritarar skrá niður beiðnir um lyfjaendurnýjanir alla virka daga frá kl. 9:00 til 12:00 í síma 513-5902.
Lestu meira um lyfjaskömmtun, fjölnota lyfseðlar og hvaða lyf er ekki hægt að endurnýja rafrænt eða í gegnum síma
Vottorð
Ef þörf er á veikindavottorði vegna skóla eða vinnu þarf að tilkynna veikindin á heilsugæslustöðina sem fyrst eftir að veikindi hefjast.
Í stuttum veikindum er tekið á móti beiðnum um veikindavottorð vegna skóla í síma: 513-5900.
Hafa skal beint samband við lækni vegna lengri veikinda og annarra vottorða s.s. vinnuveitendavottorða.
Tilvísanir til sérgreinalækna
Læknar stöðvarinnar skrifa gjarnan tilvísanir til sérgreinalækna.
Þegar farið er til sérgreinalækna vinsamlegast biðjið þá um að senda heimilislækni læknabréf.
Hjá okkur starfa sérfræðingar í heimilislækningum en einnig almennir læknar, sérnámslæknar og unglæknar.
- Alexander Elfarsson sérnámslæknir í heimilislækningum
- Álfhildur Ösp Reynisdóttir læknir
- Geir Thorsteinsson heimilislæknir
- Gísli Gunnar Gunnlaugssonheimilislæknir
- Hildur Svavarsdóttir heimilislæknir
- Jón Halldór Hjartarson sérnámslæknir í heimilislækningum
- Kristín Erla Kristjánsdóttir læknir
- Óskar Sesar Reykdalssonheimilislæknir
- Reynir Björnsson heimilislæknir
- Ruth Auffenberg heimilislæknir
Símaþjónusta hjúkrunarfræðinga
Hægt er að fá símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi frá kl. 8:00 til 16:00, alla virka daga í síma 513-5900.
Ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn tekur móttökuritari niður skilaboð og haft er samband um leið og færi gefst.
Einnig bendum við á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar allan sólarhringinn alla daga í síma 1700 og í netspjalli áheilsuvera.isfrá kl. 8:00 til 22:00.
Skyndimóttaka fyrir smáslys og bráð veikindi
Það er líka hægt að koma í móttökuna á dagvinnutíma.
Öllum erindum sem koma á vaktina er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustuna á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.
Bókuð móttaka
Einnig er hægt að bóka tíma í móttöku hjúkrunarfræðinga.
Til dæmis fyrir sáraskiptingar og bólusetningar o.fl.
Algengt er að fólk leiti aðstoðar eða ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan, óþægindi eða slys.
Til dæmis er algengt að foreldrar með lasin börn fái ráðleggingar varðandi umönnun og aðstoð við að meta þörf fyrir frekari þjónustu.
Einnig leita margir ráða vegna lyfjatöku eða vantar leiðbeiningar til að rata um heilbrigðiskerfið.
Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem flokkast undir heilsuvernd, forvarnir og lífsstíl
Framkvæmdar eru rannsóknir og mælingar, t.d. mælingar á blóðþrýstingi
Lestu meira um opna móttöku heilsugæslustöðva
Við fylgjumst með heilsu og þroska frá móðurkviði til unglingsára í mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsuvernd skólabarna.
Á fullorðinsárum bjóðum við aðstoð við heilsueflingu með ráðgjöf, eftirliti og bólusetningum og heilsuvernd sem er ætluð eldri borgurum.
Heilsuvernd og heilsuefling
Mæðravernd
Heilsuverndin hefst á mæðravernd.
Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og verðandi mæður geta annað hvort farið á heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð og skráð sig á hana.
Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.
- Hvað er gert í mæðravernd í heilsugæslunni?
Ung- og smábarnavernd
Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.
Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim tilfjölskyldunnar. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er svo við 6 vikna aldur.
Síðan eru reglubundnar skoðanir hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá fylgjumst við með vexti og þroska barnanna og bólusetjum. Í skoðunum ráðleggjum við m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er alltaf hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið.
- Hvað gerum við í ung-og smábarnavernd?
- Í Heilsuveru er mikið af hjálplegu efni fyrir foreldra
Heilsuvernd skólabarna
Heilsuvernd skólabarna tekur við þegar ung- og smábarnavernd lýkur.
Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðinni sjá um heilsuvernd skólabarna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
- Barnaskólinn í Reykjavík - Arna Dröfn Hauksdóttir
- Brúarskóli - Arna Dröfn Hauksdóttir
- Háteigsskóli - Anna Lillý Magnúsdóttir
- Hlíðaskóli - Sigríður Elísabet Árnadóttir
- Ísaksskóli - Anna María Guðnadóttir
- Klettaskóli - María Skaftadóttir
- Suðurhlíðarskóli - Anna María Guðnadóttir
- Waldorfskólinn Sóltúni - Anna Lillý Magnúsdóttir
Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.
- Hvað gerum við í heilsuvernd skólabarna?
Heilsueflandi móttaka
Heilsuverndin tekst á við heilsuáskoranir fullorðinsára í heilsueflandi móttöku.
Þar aðstoðum við þig við heilbrigðan lífstíl með mælingum, ráðgjöf og stuðningi.
Oft kemur heilsueflandi móttaka til aðstoðar í framhaldi af viðtali við lækni en þú getur líka haft samband við hjúkrunarfræðing á stöðinni þinni ef þú þarft á þessari þjónustu að halda.
- Hvað gerum við í Heilsueflandi móttöku?
Heilsuvernd eldra fólks
Við höfum það að leiðarljósi að mæta fólki þar sem það er statt og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili.
Hafðu samband við okkur og pantaðu viðtal hjá hjúkrunarfræðingi í Heilsuvernd eldra fólks.
Í viðtölum eru m.a. veittar upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða í nærsamfélaginu. Við greinum áhættuþætti varðandi heilsufar og ráðleggjum um fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun sjúkdómasvo eldra fólk viðhaldi sem lengst andlegri, líkamlegri og félagslegri færni sinni.
Þeir sem eru 70 ára og eldri eru hvattir til að panta tíma hjá okkur í almennt eftirlit þar sem heimilislæknir fer yfir lyfjalista, mælir blóðþrýsting, blóðsykur og fleira ef þarf.
- Hvað gerum við í heilsuvernd eldra fólks?
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar annast sýnatöku fyrir skimun vegna krabbameins í leghálsi.
Skimanir eru á stöðinni hálfan dag í viku, til skiptist eftir hádegi á mánudögum, fyrir hádegi á þriðjudögum og fyrir hádegi á fimmtudögum.
Ef það er komið að þér í skimun má panta tíma á mínum síðum heilsuveru eða með símtali.
Lestu meira um leghálskrabbameinsskimun
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði við sjúkdómum, sem vitað er að regluleg hreyfing getur haft umtalsverð áhrif á.
Heimilislæknar, ljósmæður og hjúkrunarfræðingar vísa til sjúkraþjálfara. Ef þú heldur að hreyfiseðill henti þér, pantar þú fyrst tíma hjá þínum lækni.
- Sjúkraþjálfari stöðvarinnar er Ásta V. Guðmundsdóttir
- Lestu meira um hreyfiseðla
Læknar stöðvarinnar vísa til sálfræðinga þannig að fyrsta skrefið er að panta tíma hjá heimilislækni.
Alda Ingibergsdóttir sálfræðingur sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir börn og unglinga.
- Nánari upplýsingar um sálfræðiþjónustu við börn og unglinga
Guðlaug Friðgeirsdóttir ogLiv Anna Gunnarsdóttir sálfræðingar sinna meðferð og ráðgjöf fyrir fullorðna
Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) fyrir fulllorðna.
HAM námskeið í hópi henta mörgum en ekki öllum og því er byrjað á kynningartíma fyrir þau sem hafa áhuga á að fara á HAM námskeið.
Nánari upplýsingar
- HAM - Hugræn atferlismeðferð
- HAM-S- Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi
Heilsugæslan Hlíðum þjónar fyrst og fremst íbúum Hlíðasvæðis er takmarkast af Snorrabraut og Kringlumýrarbraut og sjóa á milli,en allir eru velkomnir a stöðina.
Við veitum samfellda þjónusta með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Fagleg afstaða er tekin til allra erinda og annað hvort leyst úr þeim eða ráðlagt um önnur úrræði.
Þjónustan byggir á sérþekkingu starfstétta og þverfaglegri samvinnu.
Um heilsugæslustöðina
Yfirmenn
Heilsugæslustöðvum er stýrt af svæðisstjóra.
Fagstjórar lækninga og hjúkrunar leiða faglegt starf.
- Svæðisstjóri og fagstjóri lækninga: Hildur Svavarsdóttir
- Fagstjóri hjúkrunar: Anna Ólafsdóttir
- Skrifstofustjóri: Sandra Dröfn Thomsen
Þagnarskylda og fagmennska
Allt starfsfólk stöðvarinnar er samkvæmt lögum, ráðningarsamningum og siðareglum heilbrigðisstétta bundið þagnarheiti um allt er varðar hagi þess fólks sem það sinnir.
Ábendingar, kvartanir og hrós
Við viljum vita hvað þér finnst um þjónustu okkar.
Þú getur sent okkur tölvupósteða talað beint við starfsfólkið.
Ábendingar um hvað betur má fara hjálpa okkur að gera enn betur.
Starfsmenn | Starfsheiti | Sími | Netfang |
---|---|---|---|
Alda Ingibergsdóttir | Sálfræðingur | 513-5900 | |
Alexander Elfarsson | Læknir | 513-5900 | |
Anna Guðný Hallgrímsdóttir | Ljósmóðir | 513-5900 | |
Anna Lillý Magnúsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5900 | |
Anna María Guðnadóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5900 | |
Anna Ólafsdóttir | Fagstjóri hjúkrunar | 513-5900 | |
Álfhildur Ösp Reynisdóttir | Læknir | 513-5900 | |
Bjarni Lúðvíksson | Unglæknir | 513-5900 | |
Ester Böðvarsdóttir | Sérnámshjúkrunarfræðingur | 513-5900 | |
Gabríela Auður Hákonardóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5900 | |
Geir Thorsteinsson | Heimilislæknir | 513-5900 | |
Gísli Gunnar Gunnlaugsson | Heimilislæknir | 513-5900 | |
Guðlaug Friðgeirsdóttir | Sálfræðingur | 513-5900 | |
Hafdís Ósk Baldursdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5900 | |
Helga Líf Káradóttir | Unglæknir | 513-5900 | |
Hildur Svavarsdóttir | Svæðisstjóri og Fagstjóri lækninga | 513-5900 | |
Jón Halldór Hjartarson | Sérnámslæknir í heimilislækningum | 513-5900 | |
Jónas Ásmundsson | Unglæknir | 513-5900 | |
Kristín Erla Kristjánsdóttir | Læknir | 513-5900 | |
Kristín Helga Einarsdóttir | Ljósmóðir | 513-5900 | |
Liv Anna Gunnell | Sálfræðingur | 513-5900 | |
Lovísa Guðbrandsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5900 | |
María Gústavsdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5900 | |
María Skaftadóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5000 | |
Marín Björg Guðjónsdóttir | Ljósmóðir | 513-5900 | |
Olga Lára Jónsdóttir | Móttökuritari | 513-5900 | |
Óskar Sesar Reykdalsson | Heimilislæknir | 513-5900 | |
Ragnhildur Grétarsdóttir | Móttökuritari | 513-5900 | |
Reynir Björn Björnsson | Heimilislæknir | 513-5900 | |
Ruth Auffenberg | Heimilislæknir | 513-5900 | |
Sandra Dröfn Thomsen | Skrifstofustjóri | 513-5900 | |
Sigríður Elísabet Árnadóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5900 | |
Sóley Hauksdóttir | Hjúkrunarfræðingur | 513-5900 | |
Unnur Guðrún Unnarsdóttir | Móttökuritari | 513-5900 | |
Valgerður Bjarnadóttir | Heilsugæsluritari | 513-5900 |
VIRÐING- SAMVINNA- FAGMENNSKA
Fannst þér efnið hjálplegt?